Innlent

Voru með fíkniefni

Tveir menn um fertugt voru handteknir á Selfossi eftir að hafa verið stöðvaðir við venjubundið eftirlit um klukkan tvö í fyrrinótt. Eftir að lögregla hafði stöðvað mennina vaknaði grunur um að þeir væru með fíkniefni. Sá grunur reyndist á rökum reistur þar sem lítilræði af amfetamíni fannst í bifreiðinni. Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum. Sömu nótt voru þrír teknir fyrir ölvunarakstur í bænum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×