Innlent

Fjögur systkini slösuðust

Fjögur systkini slösuðust eftir að bifreið sem eitt þeirra ók valt á Snæfellsnesvegi skammt vestan við Hítará um klukkan eitt í gærdag. Þau voru flutt með tveimur sjúkrabílum til Reykjavíkur en reyndust ekki eins alvarlega slösuð og talið var í fyrstu. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum sem tók að rása á veginum og valt en lenti síðan utan vegar. Margir vegfarendur aðstoðuðu systkini á slysstað en lögreglumaður á frívakt var einn þeirra sem kom að slysinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×