Innlent

Erilsamt hjá lögreglu

Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni á Akureyri frá því um miðja vikuna. Líf og fjör var í miðbænum aðfaranótt laugardags og gistu nokkrir fangageymslur lögreglunnar, sumir einungis sökum ölvunar en aðrir einnig vegna ryskinga á tjaldstæði í bænum. Þá voru sjö teknir fyrir ölvunarakstur frá föstudegi til laugardags. Bæði mótorkrossmót og torfærukeppni sem haldin voru í nágrenni Akureyrar gengu mjög vel fyrir sig að sögn lögreglu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×