Innlent

Meistarar í strætisvagnaakstri

Íslenskir strætisvagnabílstjórar unnu norrænu ökuleikniskeppnina þriðja árið í röð. Keppnin fór fram í Ósló í dag. Norðmenn urðu í öðru sæti, Finnar í þriðja, Svíar í fjórða - og Danir lágu í því. Steindór Steinþórsson varð í öðru sæti í einstaklingskeppninni. Finni varð Norðurlandameistari, Marku Poilenen, og Per Pedersen frá Danmörku varð í þriðja sæti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×