Hannes hættir hjá ÍE 18. júní 2004 00:01
Hannes Smárason, aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagreiningar lætur af störfum hjá fyrirtækinu til að einbeita sér að starfi stjórnarformanns Flugleiða. Í tilkynningu frá ÍE segir að Hannes muni áfram verða ráðgjafi hjá fyrirtækinu. "Hannes hóf störf hjá Íslenskri erfðagreiningu skömmu eftir stofnun og hefur í sjö ár verið lykilmaður í vexti fyrirtækisins og þróun þess í fullburða líftækni-lyfjafyrirtæki. Um leið og við þökkum góðum félaga fyrir vel unnin störf óskum við honum alls hins besta í framtíðinni," sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. "Starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar hefur sjaldan verið meira spennandi því við erum byrjuð að prófa lyf sem erfðafræðirannsóknir hafa skilað okkur. Á næstunni stefnum við að því að ráða til fyrirtækisins stjórnendur með reynslu og þekkingu á regluverki, leyfisveitingum og markaðssetningu úr lyfjaiðnaðinum til að fylgja eftir viðskiptaáætlunum fyrirtækisins." "Ég lít á það sem forréttindi að hafa fengið að taka þátt í að byggja upp eitthvert merkilegasta líftæknifyrirtæki heimsins með Kára Stefánssyni og öðru starfsfólki Íslenskrar erfðagreiningar. Fyrirtækið er í dag mjög vel í stakk búið til að hrinda markmiðum sínum í framkvæmd og ég hlakka til að fylgjast með framgangi þess. Ég vil líka þakka öllu starfsfólki Íslenskrar erfðagreiningar fyrir samstarfið og fyrir að deila með mér áhuga sínum á að skapa nýja þekkingu í læknisfræði," sagði Hannes Smárason. Starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar byggir á rannsóknum í lýðerfðafræði. Þekkingu á erfðafræði sjúkdóma er breytt í afurðir fyrir heilbrigðisgeirann. Hjá fyrirtækinu er meðal annars unnið að meingenaleit, rannsóknum í lyfjafræði og lyfjaerfðafræði, þróun á DNA-greiningarprófum og smíði lífupplýsingakerfis. Lyfjaefnafræðideild Íslenskrar erfðagreiningar í Chicago og Seattle starfar að framhaldsrannsóknum á lyfjamörkum úr erfðafræðirannsóknum fyrirtækisins á Íslandi auk ýmissa þjónusturannsókna fyrir lyfja- og líftæknigeirann.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira