Innlent

Framkvæmdastjóri NATO býður aðstoð

Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, er staddur hér á landi í tveggja daga heimsókn og fundaði með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra í gær. Scheffer hrósar íslenskum stjórnvöldum fyrir rekstur flugvallarins í Afganistan og segir Íslendinga setja öðrum þjóðum gott fordæmi og sanna að smáþjóðir geti skipt sköpum. Hann hefur rætt stöðu varnarmála á Íslandi við Davíð og Halldór og bauð þeim aðstoð sína í samningaviðræðum við bandarísk yfirvöld væri þess óskað. Framkvæmdastjórinn neitaði hins vegar að NATO myndi að einhverju leyti taka að sér varnir Íslands ef Bandaríkjamenn drægju herlið sitt burt. "Ég vona að íslensk og bandarísk stjórnvöld leysi málið sín á milli á grundvelli varnarsamningsins, en þetta er ekki mál sem varðar NATO." Davíð Oddsson tók undir orð framkvæmdastjórans og sagði engan ágreining vera um skilning á stöðu mála. Í lok þessa mánaðar hittast utanríkisráðherrar aðildarríkja NATO á fundi í Tyrklandi, þar sem fjallað verður um þau mál sem eru efst á baugi, til dæmis ástandið í Afganistan, friðargæslu í Kosovo og hugsanlega aðkomu bandalagsins í Írak.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×