Nýtt trúfélag ásatrúarmanna 18. júní 2004 00:01
Jörmundur Ingi fyrrverandi allsherjargoði sótti í dag um leyfi til að stofna nýtt trúfélag ásatrúarmanna. Hann segir fulla ástæðu til að opinber rannsókn verði gerð á fjárreiðum Ásatrúarfélagsins. Deilur hafa verið innan Ásatrúarfélagsins og í júlí 2002 var fundur þar sem Jörmundur Ingi var settur af sem allsherjargoði. Á morgun hefur Reykjavíkurgoðorð boðað til fundar þar sem meðal annars á að fjalla um hvort krefjast eigi þess að Ásatrúarfélaginu verði skipt upp en Jörmundur Ingi segir að svo virðist sem stór hluti ásatrúarmanna, kannski helmingur eða meira, sætti sig ekki við stjórnarhætti í félaginu og því rétt að skipta upp eignum. Eldri félagar, sem lengst hafa greitt til félagsins, séu fjölmennir í hópi hinna óánægðu. Jörmundur Ingi segir ástæðu til að ákveða hvort krefjast eigi opinberrar rannsóknar á fjárreiðum félagsins. „Síðast þegar reikningar félagsins voru lagðir fram voru þeir ekki áritaðir af löggiltum endurskoðanda. Kosinn endurskoðandi félagsins lagði til að reikningarnir yrðu ekki samþykktir, því hann sá í þeim atriði sem hann taldi ólögleg, en þessu var ekki sinnt. Þá er engin önnur leið en að óska eftir opinberri rannsókn,“ segir Jörmundur Ingi. Jörmundur Ingi segir Reykjavíkurgoðorð eldra en Ásatrúarfélagið og nú sé verið að stofna goðorð á Suður- og Norðurlandi. Í framhaldinu verði stofnað félag sem haldi utan um goðorðin og því í reynd komin tvö félög ásatrúarmanna. „Ég reikna með að byrjað verði á því strax að sækja um löggildingu sem trúfélag,“ segir Jörmundur.
Fréttir Innlent Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Sjá meira