Innlent

Helgi Einar af gjörgæslu

Helgi Einar Harðarson, sem gekkst undir hjarta- og nýrnaígræðslu á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gautaborg á mánudag, hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild og liggur nú á hjartadeild. Hann er laus úr öndunarvél en að sögn móður Helga, Sigurbjargar Ásgeirsdóttur, líður honum vel eftir atvikum. Ekki er ljóst hvenær Helgi Einar verður útskrifaður en hann á heilmikla eftirmeðferð fyrir höndum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×