Innlent

Unglingspiltar kveiktu í

Fikt tveggja unglingspilta með eld varð til þess að það kviknaði í verslunarmiðstöðinni Firði í gærkvöld. Þeir höfðu kveikt í rusli við austurgafl Fjarðar með þeim afleiðingum að eldur læstist í klæðningu hússins. Þetta kemur fram á vefsíðu Víkurfrétta. Haft er eftir lögreglu að málið teljist upplýst en unnið verði í því áfram í samvinnu við félagsþjónustuna í Hafnarfirði þar sem piltarnir eru undir sjálfræðisaldri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×