Innlent

Námið gjaldfrjálst að hluta

Leikskólanám fimm ára barna verður gjaldfrjálst að hluta, nái tillögur starfshóps um aukna samþættingu leikskóla og grunnskóla í Reykjavík fram að ganga. Starfshópurinn leggur til að frá og með næsta hausti verði fimm ára börnum boðið gjaldfrjálst nám í þrjár stundir fyrri hluta dags, og ennfremur er lagt til að leikskólar vinni afmarkaða námsskrá fyrir fimm ára börnin þar sem áhersla verði meðal annars lögð á félags- og samskiptahæfni. Starfshópurinn var settur á laggirnar af borgarráði í júní 2002 og verða tillögur hans lagðar fyrir fund borgarráðs á þriðjudag. Verði þær samþykktar mun Reykjavíkurborg hafa forgöngu um það hér á landi að líta á starf leikskólans sem hluta af samfelldu námsferli einstaklings, og þar með að viðurkenna leikskólagöngu sem fyrsta skólastigið. Sigrún Elsa Smáradóttir, sem sæti á í leikskólaráði og er formaður starfshópsins, segir samþættingu skólagöngu barna og unglinga vera verkefni sem hlýtur alltaf að vera í gangi. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×