Innlent

Helga hjartaþega heilsast vel

Helga Einari Harðarsyni, sem gekkst undir hjarta- og nýrnaígræðslu í Gautaborg á mánudag, líður eftir atvikum vel, að sögn móður hans. Hann nýtur góðrar aðhlynningar og er ótrúlega hress. Helgi Einar, sem er rúmlega þrítugur, gekkst undir hjarta- og nýrnaígræðsluna á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gautaborg síðastliðinn mánudag en þetta er í annað skipti sem hann þarf að fara í hjartaígræðslu Aðgerðin gekk vel en hún tók tíu klukkustundir. Móðir Helga, Sigurbjörg Ásgeirsdóttir, fór með honum til Gautaborgar og segir hún ójóst hversu lengi Helgi Einar þarf að dvelja ytra vegna eftirmeðferðar. Hún segir sænsku læknana mjög ánægða með ástand hans og að útlitið sé bjart.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×