Innlent

Möl rutt ofan af Ingólfsfjalli

Stórvirk jarðýta heldur áfram að ryðja möl ofan af Ingólfsfjalli í malarnámuna við fjallsræturnar, þrátt fyrir þá niðurstöðu Skipulagsstofnunar frá í fyrradag um að þetta sé óheimilt. Að sögn landeiganda, Helga Eggertssonar á Kjarri í Ölfusi, hefur honum ekkert borist um þessa niðurstöðu, hvorki frá stofnuninni né sveitarstjóra Ölfushrepps. Helgi segist aðeins hafa heyrt getið um þetta í fréttum. Hann hefur jafnframt talað við verktakann sem sér um efnisvinnsluna og hann tjáði Helga að ekkert hafi verið talað við hann heldur. Á meðan svo væri héldi hann efnisvinnslunni áfram þar sem hann teldi að náman ofan á fjallinu væri hluti af heildarnámusvæðinu, en ekki ný náma eins og Skipulagsstofnun segði. Ekki náðist í sveitarstjóra Ölfushrepps í morgun þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Hjá heilbrigðiseftirliti Suðurlands, sem hefur gert athugasemd við efnisvinnslunna vegna nálægðar við vatnsöflunarsvæði Selfyssinga, fengust þær upplýsingar að ekkert hafi verið aðhafst enn sem komið er. Ekki hefur verið leitað liðsinnis lögreglu við að stöðva vinnsluna þannig að staðan þessa stundina virðist vera sú að ýmist viti menn ekki neitt, eða geri ekki neitt, nema hvað öflugur Caterpillarinn heldur áfram að hefla ofan af fjallinu og steypa efninu niður fjallshlíðina þar sem því er mokað á vörubíla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×