Innlent

Hvalfjarðargöngin opnuð að nýju

Hvalfjarðargöngin hafa verið opnuð að nýju en þeim var lokað um tíuleytið í morgun eftir að bíll með stórt hjólhýsi í eftirdragi, á leið suður göngin, fór utan í vegg neðst í þeim og hjólhýsið valt á hliðina. Ekki urðu slys á fólki en í bílnum voru hollensk hjón á hringferð um landið. Bíllinn er mikið skemmdur ef ekki ónýtur samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu Speli sem rekur göngin. Hjólhýsið er sömuleiðis illa farið. Ekki er vitað um tildrög óhappsins en lögregla rannsakar málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×