Innlent

Útihátíð á Akureyri í nótt

Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri í alla nótt vegna eins konar útihátíðar sem hófst á tjaldstæðinu í bænum þegar formlegum hátíðarhöldum lauk um klukkan hálf eitt. Fjöldi ungmenna dvelur á tjaldstæðinu í tengslum við svonefnda bíladaga og voru græjur þandar og reykspólað ofan í svörðinn. Lögreglan reyndi eftir föngum að róa fólk og þrátt fyrir allt þurfti ekki að handtaka neinn. Ró komst ekki á fyrr en undir morgun, þótt kalt hafi verið í veðri og hitinn farið niður undir frostmark.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×