Innlent

Féll út úr bíl

Ungur maður slasaðist alvarlega, meðal annars á höfði, þegar hann féll út úr bíl á þjóðveginum norðan við Akureyri um klukkan tvö í nótt og lenti á veginum. Hann var fyrst fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri en sjúkraflugvél flutti hann svo til Reykjavíkur undir morgun þar sem hann var lagður inn á Landspítalann. Maðurinn er með alvarlegan höfuðáverka og er í öndunarvél. Ekki er vitað um tildrög þess að hann féll út úr bílnum nema hvað enginn er grunaður um að hafa stjakað honum út úr bifreiðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×