Innlent

Eldur í Firðinum

Fjölmennt slökkvilið frá fjórum stöðvum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent að verslunarmiðstöðinni Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar um klukkan níu í gærkvöld af ótta við að eldur, sem þar hafði verið kveiktur, kynni að ná mikilli útbreiðslu. Kveikt hafði verið í rusli við húsvegginn og eldurinn náð að læsa sig í klæðningu undir ytra byrði hússins. Þar barst hann upp með húsinu en slökkviliðsmenn voru fljótir að slökkva. Að því búnu þurfti að rífa talsvert af klæðningu til að ganga úr skugga um að ekki leyndust glæður. Brennuvargurinn er ófundinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×