Vísað úr landi innan viku 17. júní 2004 00:01
Þrír Palestínumenn sem sluppu úr gæsluvarðhaldi í gær voru handteknir aftur þegar í stað vegna annarrar kæru og þeim úthlutaðir nýr lögmaður, þvert á óskir þeirra. Fyrri lögmenn fengu ekkert að vita um afdrif skjólstæðinga sinna. Mennirnir komu hingað til lands með Norrænu í byrjun maí og framvísuðu fölsuðum eða stolnum vegabréfum við komuna til landsins. Þeir voru handteknir, óskuðu þá eftir hæli, og segjast vera Palestínumenn. Lögreglu grunaði hins vegar að þeir tengdust alþjóðlegri glæpastarfsemi, einkum skipulögðum fólksflutningum til Kanada og Bandaríkjanna. Því voru þeir úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald, sem rann út í gær. Í gærmorgun var þeim sleppt, en samkvæmt heimildum fréttastofu biðu þeirra þá menn á vegum ríkislögreglustjóra og handtóku þá. Lögmönnum Palestínumannanna barst tilkynning um að þeim hefði verið sleppt þegar í gær, og áttu von á því að skjólstæðingar sínir væru frjálsir þegar einn þeirra forvitnaðist um hagi þeirra síðdegis sama dag. Fyrst þá kom í ljós að þeir voru í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem útlendingastofnum fór fram á varðhald uns þeim yrði vísað úr landi. Jón Einar Jakobsson, sem er lögmaður eins Palestínumannanna, undraðist þetta mjög, og krafði lögmann lögreglunnar svara um hvers vegna verjendur mannanna og lögmenn hefðu ekki verið látnir vita. Þá var honum tilkynnt að mennirnir hefði fengið nýjan, sameiginlegan lögmann, ekki þó að eigin ósk, heldur þar sem að þeir krossuðu í reit á blaði sem yfirvöld fengu þeim í hendur. Um nýtt mál væri að ræða, sem nýr talsmaður, eins og það heitir í útlendingalögum, sinnti. Tveir Palestínumannanna hafa neitað þessu í samtali við verjendur sína, segjast hafa krafist þess að tala við verjendurna og ekki skrifað undir neitt. Nýi talsmaðurinn, Guðbjarni Eggertsson, fékk tilkynningu um málið klukkan tíu í gærmorgun. Hann þurfti að mæta til skýrslutöku klukkan ellefu og í Héraðsdóm upp úr klukkan eitt síðdegis. Hann sagði í samtali við fréttastofu að þessi skammi frestur væri bagalegur og bæði óheppilegt og óvenjulegt að nýr lögmaður væri kallaður til með þessum hætti, í stað þeirra lögmanna sem annast hafa mál mannanna og þekktu forsöguna. Að vísu sé mál útlendingastofnunar að forminu til óskylt rannsókn lögreglunnar, en að íslensk yfirvöld skuli með þessum hætti fá menn til að krossa í kassa, án þess að þeir hafi hugsanlega fullan skilning á því hvað þeir séu að gera, er undarlegt að mati Guðbjarna. Verjendur Palestínumannanna hafa meðal annars vakið athygli fyrir harðan framgang í málinu undanfarna daga, en þeir kröfðust þess fyrir Hæstarétti að fá aðgang að hluta málsgagna, sem lögreglan vildi ekki afhenda. Eftir úrskurð Hæstaréttar reyndist lögmönnunum þó enn erfitt að fá lögregluna til að afhenda gögnin. Guðbjarni Eggertsson segir að Palestínumönnunum verða vísað úr landi innan viku, vegna fölsuðu vegabréfanna, en sá úrskurður hefur verið kærður til dómsmálaráðuneytisins. Alls er óvíst að sá úrskurður komi áður en mönnunum verður vísað úr landi.
Fréttir Innlent Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Velja Viljandi villt Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Fleiri fréttir Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Sjá meira