Innlent

Hátíðarræða forsætisráðherra

Davíð Oddsson forsætisráðherra var hátíðlegur í orðum þegar hann flutti ræðu í tilefni af hátíðarhöldunum 17. júní. Hann talaði um jarðaför Jóns Sigurðssonar og konu hans Ingibjörgu fyrir 125 árum og þann atburð sem átti sér stað nokkrum vikum síðar þegar hornsteinn var lagður að Alþingishúsinu. Davíð lagði áherslu á mikilvægi Alþingis, að þrátt fyrir að þar logaði allt í átökum og klögumálum, þrátt fyrir að brigslyrði gengju þar á víxl og stóryrði og sigurmæli væru ekki spöruð, yrði að hafa í huga að sá þáttur sé minnsti hluti þingsins og teljist jafnvel til nauðsynlegrar kappræðu þjóðmálastofnunnar. Ýtið hér til að sjá alla ræðu forsætisráðherra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×