Frábært á EM 16. júní 2004 00:01
Wayne Rooney, hinn ungi framherji enska landsliðsins, er í sjöunda himni með reynslu sína af Evrópumótinu Portúgal hingað til. Rooney var besti leikmaður enska liðsins í tapleiknum gegn Frökkum á sunnudaginn, í sinum fyrsta leik á stórmóti, og er afskaplega jákvæður þrátt fyrir úrslitin. "Það er frábært að vera hérna með bestu leikmönnum Evrópu. Þetta er stórkostleg reynsla fyrir ungan leikmann eins og mig og getur aðeins hjálpað mér sem leikmanni," sagði Rooney á blaðamannafundi í gær. Rooney talaði einnig um vináttu sína við Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool, og sagði Gerrard hafa hjálpað sér mikið. "Hann hefur reynst mér ómetanlegur og er alltaf tilbúinn að gefa mér góð ráð þegar ég þarf á því að halda. Við eyðum miklum tíma saman, spilum borðtennis og ballskák en það verður reyndar að viðurkennast að ég er mun betri en hann í báðum þessum íþróttum." Rooney getur orðið yngsti leikmaðurinn í sögu úrslitakeppni Evrópumótsins ef hann skorar gegn Sviss á morgun en hann vildi lítið gera úr því. "Það væri auðvitað gaman að eiga það í minningunni að hafa verið yngsti leikmaðurinn til að skora í þessu móti en það mikilvægasta er að vinna leikinn, hver skorar mörkin er algjört aukaatriði," sagði Rooney, sem hefur staðið undir væntingum og gott betur það sem af er þessu móti.
Íslenski boltinn Mest lesið Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Enski boltinn Sló heimsmetið í fjórtánda sinn Sport Beit andstæðing á HM Sport „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Enski boltinn Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ Enski boltinn Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Fótbolti Sjáðu mörkin úr mettapi KR Íslenski boltinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Enski boltinn Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Enski boltinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: ÍA - Afturelding | Botnliðin eigast við Verður væntanlega ráðinn 89 dögum eftir að hann var rekinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Sló heimsmetið í fjórtánda sinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Krísa í Kansas Sigur færir Eyjamönnum sæti í efri hlutanum Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Beit andstæðing á HM „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Sjáðu mörkin úr mettapi KR Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ „Arteta hefur aldrei verið með jafn góðan hóp og núna“ Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Dagskráin í dag: Mikilvægir leikir í lokaumferðinni Skoraði hundraðasta markið eftir 637 daga fjarveru Þurftu að aflýsa síðasta leggnum vegna mótmæla Uppgjör: Valur - Stjarnan 1-2 | Stjarnan mætt af fullum þunga í titilbaráttuna Glódís langbest Íslendinga í nýja leiknum Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn „Hrikalega sáttur með þetta“ „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Börsungar fóru illa með Valencia Hildur lagði upp í Madrídarslagnum „Búnir að æfa það að setja Sigurjón upp í senterinn“ Daníel Tristan skoraði tvö og benti á Guðjohnsen-nafnið Uppgjörið: KA - Vestri 4-1 | Frábær sigur dugði ekki til Sjá meira