Innlent

Hákon og Mette á leið til landsins

Hákon Magnús, krónprins Noregs og Mette Marit eiginkona hans, eru væntanleg í opinbera heimsókn hingað til lands 27. þessa mánaðar. Er ráðgert að þau dvelji hér á landi í þrjá daga. Þau munu meðal annars heimsækja síldarminjasafnið á Siglufirði en í ár er þess minnst að hundrað ár eru liðin síðan að síldarævintýrið þar hófst, að mestu fyrir forgöngu Norðmanna. Mikið annríki er nú í safninu við að ljúka uppbyggingu bátahússins svonefnda. Það á að hýsa níu báta, stóra og smáa, sem tengjast ævintýrinu. Miklar öryggisráðstafanir eru fyrirhugaðar vegna komu hinna tignu gesta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×