Hóta starfsfólki lífláti 15. júní 2004 00:01
Tveir pólitískir flóttamenn sem beðið hafa um hæli hér á landi hafa haft uppi alvarlegar hótanir við starfsfólk Félagsþjónustunnar í Reykjanesbæ samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þeir hafa hótað starfsfólki líkamsmeiðingum og jafnvel lífláti. Þá hafa þeir að auki hótað hungurverkfalli og að svipta sjálfa sig lífi. Mennirnir komu til landsins með Norrænu í byrjun mánaðarins og gáfu sig fram við lögregluna á Akureyri. Fátítt er að slík mál komi upp á Akureyri og voru mennirnir sendir til Reykjanesbæjar þar sem félagsþjónusta bæjarins hefur samning við Útlendingastofnun um umsjá hælisleitenda. Mennirnir segjast vera frá Hvíta Rússlandi en þeir komu hingað til lands á litháenskum vegbréfum sem þeir segja fölsuð. Lögreglan í Keflavík rannsakar nú uppruna mannanna þar sem þær upplýsingar þurfa að liggja fyrir áður en Útlendingastofnun getur tekið málið til meðferðar. Heimildir segja mennina vera ósátta við að meðferð hælisbeiðnirnar í kerfinu og láta það bitna á starfsfólki félagsþjónustunnar með slíkum hætti að starfsfólkinu standi ekki á sama og sé í stökustu vandræðum með mennina. Hælisleitendur sem eru í umsjá félagsþjónustunnar eru ekki í neinni sérstakri gæslu á meðan þeir bíða þess að mál þeirra fái meðferð. Georg Lárusson, forstjóri Útlendingastofnunar, staðfesti við Fréttablaðið í gær að mennirnir tveir væru í umsjá Félagsþjónustunnar í Reykjanesbæ. Beðið væri eftir upplýsingum um uppruna mannanna áður en hægt væri að taka mál þeirra til meðferðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Innlent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Erlent Þjökuð af samviskubiti meðan pabbinn bíður eftir plássi Innlent Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Innlent Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Erlent Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Innlent Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Innlent Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Innlent Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Innlent Fleiri fréttir Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Styrkur svifryks áfram hár í borginni Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Óbreytt ástand á Landspítala og svifrykið hrellir borgarbúa Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Guðmundur Ingi gefur ekki kost á sér Þjökuð af samviskubiti meðan pabbinn bíður eftir plássi Stillir sér upp á miðjunni Mikill meirihluti vill banna sölu á orkudrykkjum til barna Fimm sóttir upp á Fjarðarheiði í nótt Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Happdræti Háskólans varar við svikurum Íhugar að leggja á sykurskatt „Framsókn styður ekki bókun 35“ Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Sinueldur við Framheimilið Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Gómaður með hamar, hnífa og þýfi „Eins og knattspyrnuþjálfari sem er á bekknum“ „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Sjá meira