Innlent

Prófniðurstöður í skoðun

Niðurstöður prófa í tveimur áföngum Tækniháskóla Íslands eru í skoðun eftir að 80% nemenda féllu í öðrum þeirra og 60% í hinum. Sami kennarinn kenndi báða áfangana og voru nemendurnir á fyrri önn lokaárs í rekstrardeild. Stefanía Katrín Karlsdóttir, rektor Tækniháskóla Íslands, segir á fjórða tug nemenda hafa verið í hvorum áfanganum fyrir sig. Hún segir málið í skoðun. "Niðurstaða verður birt innan örfárra vikna." Stefánína segir vikurnar ekki verða mikið fleiri en þrjár. "Það er sérfærðihópur sem vinnur að því að skoða þetta mál og ég bíð eftir niðurstöðu þeirrar vinnu."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×