Innlent

Fjórir í forvali

Fjórir aðilar hafa tilkynnt þátttöku sína í forvali varðandi hönnun, byggingu og rekstur tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels í miðborg Reykjavíkur. Hóparnir fjórir eru Fasteign hf. sem Ístak/PIHL stýrir, Multiplex, Portus Group sem Íslenskir aðalverktakara stýra og Viðhöfn sem Eykt stýrir. Um næstu mánaðarmót verður búið að meta alla umsækjendur en því næst er tekið við tillögum þeirra og tilboðum, standist þeir öll skilyrði. Gert er ráð fyrir að tilboð verði samþykkt um miðbik næsta árs en hópurinn sem hlýtur verkið hefur þá eitt ár til að hanna bygginguna. Búast má því við að framkvæmdir hefjist á seinni hluta árs 2006. Að sögn Stefáns Hermannssonar, arkitekts hjá Austurhöfn - TR ehf. sem hefur umsjón með útboðinu er þetta mjög góð viðbrögð og virðast allar umsóknirnar við fyrsru sýn mjög álitlegar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×