Innlent

Kaup KB banka vekja athygli

Markaðsverðmæti KB banka hélt áfram að hækka í gær og hefur nú hækkað um 26 milljarða á tveimur dögum. Hlutabréfin hækkuðu um 3,29 prósent í gær en eftir að kaup KB banka á danska bankanum FIH hækkuðu bréfin um 12,5 prósent. Markaðsvirði KB banka er nú tæpir 180 milljarðar króna. Kaupin í Danmörku vekja athygli víða um heim. Frétt um viðskiptin hefur birst í stórblöðum fjármálaheimsins svo sem Wall Street Journal og Financial Times. Financial Times segir kaupin hafa komið markaðsaðilium á Norðurlöndum á óvart. Fyrirfram hafi verið búist við að sænskir stórbankar myndu kaupa banka sem horft hefði verið til sem eins af girnilegustu kostunum meðal danskra banka. KB banki keppti um kaupin við Nordea og SEB bankann um kaupin, auk Landsbankans. Financial Times segir ýmsa hafa efasemdir um að KB banki geti aflað fjár til kaupanna. Haft er eftir Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni KB banka að hann telji nokkuð víst að hlutafjárútboð gangi vel. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur stórbankinn Deutche Bank lýst áhuga á að sölutryggja útboðið. Því fylgir kostnaður og forysta KB banka telur ólíklegt að þörf verði á slíkri sölutryggingu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×