Innlent

Nýr kjarasamningur samþykktur

Skipstjórnarmenn á flutningaskipum og farþegaskipum, 500 brúttótonn og stærri í millilandasiglingum og strandferðum, samþykktu nýjan kjarasamning sem undirritaður var með fyrirvara um samþykki hinn 11. maí síðastliðinn. Á kjörskrá voru 64 félagsmenn og af þeim greiddu 37 atkvæði eða 57,8%. Atkvæði féllu þannig að 26 sögðu já, nei sögðu 10 en einn seðill var ógildur. Var samningurinn þar með samþykktur. Áfram er unnið að gerð nýs kjarasamnings fyrir skipstjórnarmenn á farþegskipum innanlands og skipum í staðbundnum verkefnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×