Innlent

Læknisþjónusta tryggð

Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði og Heilsugæslan í Reykjavík og nágrenni hafa gert með sér samstarfssamning um læknisþjónustu sem gildir til tveggja ára. Samkvæmt samningnum verða læknar á vegum heilsugæslunnar starfandi við heilbrigðisstofnunina samkvæmt ákveðnu skipulagi. Markmiðið er að tryggja samfellda þjónustu að minnsta kosti eins fullgilds heimilislæknis, með aðsetur á Patreksfirði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×