Innlent

Ný lög hefðu breytt öllu

"Ef vændisfrumvarpið svokallaða hefði farið í gegnum þingið, þá hefði refsiábyrgðinni verið snúið við og konan hefði getað kært," sagði Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður um mál, þar sem konu var vísað frá með kæru á hendur manni sem auglýsti eftir starfskrafti en var í raun að leita að vændiskonu. Lögregluyfirvöld tjáðu konunni að maðurinn hefði haft rétt á því að gera það sem hann gerði, því ekkert ólöglegt hefði átt sér stað. Athæfið teldist ekki ólöglegt fyrr en "viðskiptin" hefðu farið fram. Þá væri það konan sem væri brotleg, en ekki maðurinn. Ágúst Ólafur sagði enn fremur, að þarna hefði kaupandinn frumkvæðið og valdið. Hann væri jafnvel að reyna að tæla umrædda konu til vændis, en væri laus allra mála. Hefði frumvarpið orðið að lögum, bæri kaupandinn refsiábyrgðina, en ekki seljandinn. "En þetta dæmi sýnir hvað lögin eru gölluð," sagði Ágúst Ólafur og bætti við að frumvarpið kvæði einnig á um refsiábyrgð á hendur þeim sem lofaði greiðslu fyrir kynlífsþjónustu, sama í hvaða formi hún væri. Vændisfrumvarpið gerir ráð fyrir sektum eða fangelsi allt að einu ári fyrir brot af þessu tagi. Frumvarpinu var á þingi vísað til allsherjanefndar, þar sem það er nú.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×