Innlent

Siðanefnd fundar vegna Hannesar

Fundur var haldinn í siðanefnd Háskóla Íslands í morgun. Tilefnið var kæra aðstandenda Halldórs Laxness vegna fyrsta bindis ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Nóbelsskáldið. Þeir telja Hannes hafa brotið höfundarréttarlög og siðareglur Háskóla Íslands við ritun bókarinnar. Lögmaður Hannesar Hólmsteins hefur farið fram á að siðanefnd vísi málinu frá og hefur fært margvísleg rök fyrir kröfu sinni í greinargerð til nefndarinnar. Lögmenn beggja komu fyrir siðanefnd í morgun og segir Þorsteinn Vilhjálmsson, formaður nefndarinnar, að tekin verði afstaða til frávísunarkröfunnar fyrir lok þessa mánaðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×