Innlent

Vill rannsaka hvali við Ísland

Alþjóðadýraverndunarsjóðurinn, International Fund for Animal Welfare, hefur beðið í tæpa fimm mánuði eftir leyfi sjávarútvegsráðuneytis til að stunda rannsóknir á spendýrum við Íslandsstrendur. Sjávarútvegsráðuneytið ætlar að óska eftir frekari upplýsingum áður en leyfið verði veitt. Sigursteinn Másson, talsmaður Íslendsdeildar samtakanna, segir tíu manna hóp með mörgum fremstu vísindamönnum á sviði hafrannsókna verða á seglskútunni sem sé væntanleg 1. júlí. "Gögnum sem verður aflað í þessum rannsóknum verða aðgengileg íslenskum vísindamönnum og afhent Hafrannsóknarstofnun í lok ferðarinnar," segir Sigursteinn. Stefán Ásmundsson, þjóðréttarfræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu, segir umsókn samtakanna hafa borist í gengum breska sendiráðið. "Ekki var augljóst hvert hlutverk breskra stjórnvalda væri í þessum rannsóknum þannig að það fyrsta sem við gerðum var að leita skýringa á því sem við fengum." Stefán segir hlutverk þeirra ekki neitt og í kjölfarið hafi venjulegt vinnsluferli hafist. Svars sé að vænta á næstu dögum. "Við munum óska frekari upplýsinga, en við lokum ekkert á það að ýmsir stundi vísindarannsóknir hér."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×