Rangar ráðleggingar í 20 ár 15. júní 2004 00:01 "
Sé litið yfir 20 ára feril hafa ráðleggingar Alþjóða hafrannsóknarráðsins yfirleitt reynst rangar, bæði hvað varðar Færeyjar, Ísland og Noreg, svo dæmi séu nefnd. Það er allt öfugu megin á hrossinu" sagði Jón Kristjánsson fiskifræðingur um tillögur Alþjóða hafrannsóknarráðsins sem ráðleggur Færeyingum að minnka veiðar á þorski og ýsu um 60% á næsta fiskveiðiári. Þá leggur ráðið til að veiði á ufsa verði skorin niður um 30% Jón er nú staddur í Færeyjum, þar sem hann er til ráðleggingar þarlendum sjómönnum og útgerðarmönnum um tillögur fiskveiða sem síðan verða sendar sjávarútvegsráðherra, er leggur þær fyrir landsstjórnina. "Mönnum finnst það náttúrlega bölvanlegt fyrir fiskveiðiþjóð að þurfa að hætta að veiða," sagði hann. "Þeir eru mjög ósáttir og hissa." Jón sagði enn fremur, að ekki væri að sjá að stofnar ýsu, þorsks og ufsa væru í neinni stórkostlegri hættu nú. Allir væru sammála um að þar sem afli hefði heldur minnkað, væru stofnarnir ekki eins stórir og áður, enda gætu þeir ekki stækkað endalaust. Sama lögmál gilti um þá eins og annað í náttúrunni. "Svo greinir menn á um hversu alvarlegt það sé og þá einnig hvað eigi að gera í stöðunni," sagði hann. "Alþjóða hafrannsóknarráðið leggur til að veiðarnar verði skornar niður. Það hefur verið veitt umfram ráðleggingar ráðsins, til dæmis 2000,2001 og 2002, og alltaf stækkuðu stofnarnir. Það hefur verið veitt með sama flota og sama dagafjölda, þannig að veiðiálagið hefur verið nokkuð stöðugt. Aflinn hefur þá endurspeglað stofnstærðina. Það eru engar stórkostlegar breytingar í afla þannig að menn eiga erfitt með að skilja af hverju allt í einu koma tillögur um svo mikinn niðurskurð. Þeir virðast halda, að fari stofninn minnkandi, sé hægt sé að geyma fiskinn í hafinu og taka hann seinna. Það hefur bara ekki staðist. Hann hefur horfið, þá hefur mönnum verið kennt um að þeir hafi veitt hann, en hann hefur kannski dáið úr hungri í millitíðinni, hafi hann fengið að stækka umfram burðargetu. Fram til þessa hafa menn jafnan ýtt niðurskurðartillögunum út af borðinu og haldið áfram að veiða eins og ekkert hafi í skorist. Það er spurning hvað gerist núna."
Fréttir Innlent Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Hvar er Khamenei? Erlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent Fleiri fréttir „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Sjá meira