Innlent

Mál sem brennur á kúabændum

Stofnuð hefur verið samstarfsnefnd Yfirdýralæknisembættisins, Bændasamtakanna og Rannsóknarstofnunar Landbúnaðarins, til að grafast fyrir um orsakir aukins kálfadauða hér á landi. Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssambands Kúabænda, segist vænta þess að einhverjar niðurstöður liggi fyrir frá nefndinni að loknum sumarleyfum, en málið brennur mjög á kúabændum. Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir, sem fer fyrir nefndinni, segir að unnið sé að þessa dagana sé unnið að undirbúningi frekara rannsóknastarfs vegna kálfadauðans. "Búið er að vinna að ýmsum rannsóknum nokkuð víða síðustu ár, en á nú að fara í þetta með samvinnu þessara stofnanna og koma af stað markvissum rannsóknum til að grafast fyrir um orsakir kálfadauðans og kallar það á nokkra greiningarvinnu," sagði Halldór og taldi erfitt að spá fyrir um hvenær niðurstaða gæti legið fyrir. "Menn verða að gefa sér nokkur misseri, en málið er hins vegar aðkallandi og ýmsir bændur sem eru að verða fyrir miklu tjóni." Halldór sagði ekki talið að undirliggjandi væri sjúkdómur sem væri valdur að auknum kálfadauða. "Sjónir manna beinast aðallega að hugsanlegum snefilefnaskorti og eins hafa menn nefnt skyldleikaræktun," sagði hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×