Innlent

Ríflega sex þúsund gestir

Ríflega 6000 manns sóttu sýninguna Austurland 2004 sem lauk í íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum í fyrradag. Forsvarsmenn sýningarinnar eru að vonum hæstánægðir með aðsóknina, segjast þó hafa getað tekið á móti fleiri gestum, en eftirtekt sé að gestir stoppuðu lengi og komu jafnvel aftur. Í skoðanakönnun sem vikublaðið Eystrahorn stóð fyrir á sýningunni lýstu 83% gesta sig mjög ánægða með sýninguna. Mjög mikill áhugi var á sýningunni og gestir og sýnendur sérlega ánægðir með hvernig til hefur tekist. Margt góðgæti var á boðstólunum s.s. lax úr Mjóafirði, síld frá Fáskrúðsfirði, harðfiskur frá Stöðvarfirði, mjólkurafurðir frá Vopnafirði og áfram má telja. Þá eru ótalin kynningarsvæði sveitarfélaganna. Flest þau fyrirtæki sem koma að uppbyggingu vegna virkjunar- og álversframkvæmda fyrir austan voru með kynningarbása, þjónustufyrirtæki kynntu starfsemi sína, handverksfólk er með sína bása og fjármálastofnanirnar létu heldur ekki sitt ekki eftir liggja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×