Grannar mætast í A-riðli 15. júní 2004 00:01
Í A-riðli er að finna gestgjafa keppninnar í ár, Portúgal, og helstu erkifjendur þeirra, Spánverja. Grikkland og Rússland eru lið sem ekki eru talin líkleg til að velgja þessum þjóðum undir uggum, og finnst mörgum mesta spennan vera í kringum innbyrðis viðureign Portúgals og Spánar, en sá leikur mun sennilega ráða því hvort liðið hafnar í efsta sæti riðilsins. Ber þó að varast þessa minni spámenn, til að mynda náðu Grikkir ofar en Spánverjar í undankeppni EM, þar sem þjóðirnar voru saman í riðli. Hungrar í velgengni Portúgalar eru þekktir fyrir gríðarlega hreyfanlega knattspyrnu sem er skemmtileg áhorfs. Luis Felipe Scolari er þjálfari liðsins og mun vonast til þess að endurtaka leikinn frá því á HM fyrir tveimur árum, þegar hann stjórnaði liði Brasilíu til heimsmeistaratitilsins. Nú hyggst hann ná Evróputitlinum með Portúgal. Portúgalar munu leggja traust sitt á Luis Figo og Rui Costa, reynda og hungraða í velgengni með landsliðinu - velgengni sem þeir hafa aldrei fengið að njóta. Nánast á heimavelli Spánverjar græða mikið á því að keppnin fer fram í nágrannalandinu Portúgal, og gerir þjóðin sér vonir um að landsliðið nái aftur þeim árangri sem liðið náði árið 1964, þegar liðið hampaði Evrópumeistaratitlinum. En síendurtekinn slakur árangur á stórmótum síðustu ára gæti setið í mönnum og valdið því að trúna vanti hjá leikmönnum. Spánn spilar sóknarleik með Raul sem leiðtoga og hafa tvo frábæra markmenn, Iker Casillas and Santiago Canizares, til að stjórna heldur vafasamri vörn. Frábær liðsandi Grikkland, sem er nú að taka þátt á EM í fyrsta skipti í 24 ár, spilar varnarsinnaða og skipulagða knattspyrnu. Þýski aginn er í fyrirrúmi, enda situr hinn gamalkunni Otto Rehhagel við stjórnartaumana. Gríska liðið er án stórstjarna og virðist við það hafa skapast frábær liðsandi sem stóru þjóðirnar gæti vantað. Grikkir höfðu leikið 15 landsleiki í röð án taps áður en liðið tapaði fyrir Hollandi í æfingaleik í apríl síðastliðnum. Vængbrotið lið Rússar koma til með að sársakna leikstjórnanda síns, Yegor Titov, en hann er í árs banni eftir að hafa fallið á lyfjaprófi nýlega, og leiðtoga varnarinnar, Viktor Onopko, sem er meiddur. Þeir mæta til leiks með vængbrotið lið og liggur helsta vonin í að Alexander Mostovoi, hæfileikaríkasti leikmaður liðsins, nái að búa eitthvað til upp á eigin spýtur. Það kæmi ekki á óvart ef Rússar fara illa út úr keppninni. Lykilmenn í A-riðliPortúgal Sókn Pedro Pauleta Miðja Luis Figo Vörn Fernando Couto Spánn Sókn Raul Gonzalez Miðja Ruben Baraja Vörn Carles Pyuol Grikkland Sókn Demis Nikolaidis Miðja Vassilis Tsiartas Vörn Yiannis Goumas Rússland Sókn Dmitry Sychev Miðja Alexander Mostovoi Mark Sergei Ovchinnikov
Íslenski boltinn Mest lesið Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Enski boltinn Sló heimsmetið í fjórtánda sinn Sport Beit andstæðing á HM Sport „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Enski boltinn Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ Enski boltinn Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Fótbolti Sjáðu mörkin úr mettapi KR Íslenski boltinn Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Enski boltinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Enski boltinn „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Verður væntanlega ráðinn 89 dögum eftir að hann var rekinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Sló heimsmetið í fjórtánda sinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Krísa í Kansas Sigur færir Eyjamönnum sæti í efri hlutanum Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Beit andstæðing á HM „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Sjáðu mörkin úr mettapi KR Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ „Arteta hefur aldrei verið með jafn góðan hóp og núna“ Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Dagskráin í dag: Mikilvægir leikir í lokaumferðinni Skoraði hundraðasta markið eftir 637 daga fjarveru Þurftu að aflýsa síðasta leggnum vegna mótmæla Uppgjör: Valur - Stjarnan 1-2 | Stjarnan mætt af fullum þunga í titilbaráttuna Glódís langbest Íslendinga í nýja leiknum Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn „Hrikalega sáttur með þetta“ „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Börsungar fóru illa með Valencia Hildur lagði upp í Madrídarslagnum „Búnir að æfa það að setja Sigurjón upp í senterinn“ Daníel Tristan skoraði tvö og benti á Guðjohnsen-nafnið Uppgjörið: KA - Vestri 4-1 | Frábær sigur dugði ekki til Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Sjá meira