Innlent

Rannsaka hvali án þess að drepa þá

Alþjóðlegi dýraverndunarsjóðurinn hefur í fimm mánuði beðið eftir svari frá íslenskum stjórnvöldum við því hvort honum sé heimilt að stunda hvalarannsóknir hér við land í sumar. Fulltrúar samtakanna telja sig geta stundað nákvæmari rannsóknir en áður hefur verið hægt, án þess að drepa dýrin. Í janúar sóttir breska sendiráðið á Íslandi fyrir hönd samtakanna, um rannsóknarleyfi á hvölum við strendur Íslands. Samtökin, sem heita fullu nafni International Fund For Animal Welfare, mæla gegn hvalveiðum og þróa aðferðir til að rannsaka hvali án þess að skaða þá. Þrátt fyrir ítrekaða eftirleitan segja fulltrúar samtakanna að íslensk stjórnvöld hafi ekki samþykkt umsókn þeirra, en í 17 ár hafa samtökin gert slíkar rannsóknir í landhelgi á þriðja tug ríkja og ávallt í samvinnu við stjórnvöld. Í síðustu viku var nýrri 70 feta seglskútu sjóðsins hleypt af stokkunum,en hún mun vera vel búin rannsóknartækjum. Rannsóknarleiðangurinn hefst við Skotlandsstrendur, en síðan er ætlunin að rannsóknir í íslenskri landhelgi hefjist um næstu mánarmót ef leyfi fæst. Þá ætla samtökin að bjóða íslenskum vísindamönnum og nemum að taka þátt í rannsóknunum og afhenda Hafrannsóknarstofnun Íslands frumgögn úr þeim. Þær upplýsingar fengust hjá sjávarútvegsráðuneytinu að sá dráttur sem orðið hefur á svörum frá ráðuneytinu sé vegna þess að umsók samtakanna hafi verið óljós en á allra næstu dögum ætti það að skýrast hvort þau fái rannsóknarleyfi. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×