Innlent

Tvö umferðarslys

Lögreglunni á Sauðárkróki bárust tilkynningar um tvö umferðarslys með skömmu millibili í gær. Á fimmta tímanum fór bíll út af við Mannskaðahól, rétt fyrir utan Sauðárkrók, með þeim afleiðingum að bifreiðin gjöreyðilagðist. Einn farþegi var í bílnum ásamt ökumanni og voru þau bæði flutt á sjúkrahús en meiðsl þeirra voru talin minniháttar. Klukkan rúmlega fimm fór bíll út af við Hafsteinsstaði, rétt fyrir utan Sauðárkrók, með þeim afleiðingum að kona sem ók bílnum hlaut handleggsbrot af en lögreglan vissi ekki um frekari meiðsl hennar. Bíllinn er ónýtur en málið er í rannsókn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×