Innlent

Viðurkenning til tóbakssala

Forvarnanefnd Hafnarfjarðar hefur afhent þeim söluaðilum tóbaks viðurkenningu, sem seldu ekki börnum tóbak í síðustu könnun sem fór fram. Fulltrúi Lýðheilsustöðvar flutti stutt ávarp og sagði að það væri víða tekið eftir þessu framtaki Hafnarfjarðarbæjar sem miðaði að því að minnka aðgengi barna og unglinga að tóbaki. Formaður forvarnanefndar, Guðmundur Rúnar Árnason minnti gesti á að svo virðist sem tóbaksreykingar meðal barna og unglinga í Hafnarfirði séu að aukast og því nauðsynlegt að aðilar standi saman og sporni gegn þeir þróun. Síðan var þeim söluaðilum sem seldu ekki börnum tóbak afhent viðurkenning og þeir hvattir til að halda sínu striki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×