Innlent

Mæðrastyrksnefnd dreifir fatnaði

Mæðrastyrksnefnd tók nýlega við rausnarlegri gjöf frá AKS ehf. þegar Einar Sigfússon afhenti þeim talsvert úrval af nýjum fatnaði, einkum barnafatnaði, en fyrirtækið AKS ehf. stendur fyrir fatamarkaði í Perlunni tvisvar sinnum á ári undir nafninu Merkjavara á silfurfati. Mæðrastyrksnefnd dreifir fatnaðinum til skjólstæðinga sinna og segir Hildur G. Eyþórsdóttir, formaður nefndarinnar, að gjöfin komi sér einkar vel þar sem alltaf sé mikil þörf á vönduðum barnafötum. Einstaklingar og fyrirtæki gefa Mæðrastyrksnefnd ýmist nýjar vörur eða vel með farna notaða hluti og úthlutanir nefndarinnar eru á miðvikudögum frá kl. 14.00 til 17.00 í húsnæði nefndarinnar að Sólvallagötu 48.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×