Innlent

Fíkniefnasalar á Selfossi

Lögreglan á Selfossi hefur staðið í ströngu að undanförnu. Meðal mála vikunnar má nefna upptöku á þrjátíu grömmum af hassi og nokkurra gramma af amfetamíni í kjölfar þess að lögreglan stöðvaði konu á bíl undir áhrifum lyfja. Þá fannst nokkuð magn fíkniefna, umbúðir til sölu þeirra, skotvopn, skotfæri og önnur vopn við húsleit á Þorlákshöfn. "Það hefur verið ákveðin þróun í þá átt að menn gera út héðan, segir Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, en einnig séu heimamenn að verki. Ólafur Helgi segir að kannski séu dæmin ekki það mörg að það borgi sig að draga alvarlegar ályktanir. Hann treysti sér ekki til að segja hvort um raunverulega fjölgun glæpa sé að ræða. "Þetta er kannski nær því sem mann hefur grunað því miður undanfarin ár að þetta væri miklu meira neðarjarðar en fólk tryði," segir Ólafur Helgi. Hann segir skýringuna hugsanlega tvenns konar. "Annars vegar er það að þessi fíkniefnamál séu frekar að koma upp á yfirborðið en áður og hins vegar það að lögreglan hér sé einfaldlega að ná betri árangri en fyrr." Ólafur Helgi segir lögregluna ekki hafa verið í átaki. "Við erum alltaf að fylgjast með þessum málum eins og sést af því að í fyrra voru gerðar upptækar tvær gróðrastöðvar sem voru að rækta kannabis." Ólafur Helgi segir segir það fara eftir því hvernig menn reki sínar fíkniefnastarfsemi hvort auðveldara sé að fylgjast með henni í minni bæjarfélögum. "Mínir menn eru mjög áhugasamir. Þeir fylgjast vel með," segir Ólafur Helgi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×