Innlent

Staðfestir ábendingar okkar

"Þetta staðfestir það sem minnihlutinn hefur lengi bent á. Reykjavíkurlistinn stendur á brauðfótum og er aðframkominn vegna samstarfsþreytu. Pólitísk forysta, sem var lítil fyrir, er nú engin og það eina sem heldur listanum saman er ótti valdaklíkunnar við að missa stólana sína," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um ummæli Helga Hjörvar. Guðlaugur segir enn fremur að enginn þekki betur til samstarfs Reykjavíkurlistans en Helgi Hjörvar. "Hann er einn af stofnendum listans og ötulasti starfsmaður hans frá upphafi."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×