Innlent

Þórólfur fagnar umræðunni

Þórólfur Árnason borgarstjóri segist ekki hafa ákveðið hvort hann muni sækiast eftir pólitísku burðarhlutverki innan Reykjavíkurlistans. "Það eru tvö ár til kosninga og ég mun meta stöðuna þegar nær dregur." Þórólfur hafði ekki haft tök á að lesa viðtalið við Helga Hjörvar þegar Fréttablaðið hafði samband við hann, en sagði að miðað við það sem hann hefði heyrt væri Helgi fyrst og fremst að efna til umræðu og því fagnaði hann. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, vildi ekki tjá sig um málið: "Ég tel að ég sé á hliðarlínunni í þessu máli og það sé betra að þeir sem nær standa tjái sig um það."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×