Innlent

Sundlaugin enn opin í Húsafelli

Ekki er hægt að útiloka að Norwalk-veiran sem fundist hefur í sýni sjúklings í kjölfar dvalar í Húsafelli geti verið í neysluvatni á staðnum. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins. Ekkert athugavert hefur þó fundist í vatninu á svæðinu. Veiran getur lifað í mat og vatni og borist frá manni til manns með snertingu en einnig benda líkur til að smitið geti verið loftborið. Sundlauginni á staðnum hefur ekki verið lokað en að sögn eigandans, Bergþórs Kristleifssonar, hefur aðsókn minnkað til muna að undanförnu. Ef neysluvatnið á Húsafelli er sýkt með Norwalk-veirunni vinnur klórinn í sundlauginni lítið á henni. Helgi Helgason hjá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands telur þó ekki nauðsynlegt að loka sundlauginni. "Heita vatnið í lauginni hefur upprunnalega verið um 80 gráðu heitt og því minni líkur á að veiran finnist í því vatni. Við vitum ekki einu sinni hvort veiran leynist í vatninu eða hvernig fólk hefur sýkst af magakveisunni á Húsafelli. Auk þess hefur veikin komið upp á öðrum stöðum í landinu og teljum við því óþarfi að loka aðeins ferðaþjónustu Húsafells að svo stöddu. Á meðan ekkert er hægt að útiloka ráðleggur sóttvarnalæknir ferðamönnum á svæðinu að gæta hreinlætis, þvo hendur sínar og sjóða drykkjar- og neysluvatn."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×