Innlent

Efnistaka í Undirhlíðum samþykkt

Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrirhugaða efnistöku í Undirhlíðum í landi Hafnarfjarðar með fjórum skilyrðum. Í niðurstöðu stofnunarinnar segir meðal annars að stofnunin telji að markmið framkvæmdarinnar um að sameina efnistöku á fáum en vel skipulögðum svæðum og koma í veg fyrir óskipulega efnistöku í landi Hafnarfjarðar sé jákvætt. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir niðurstöðu skýrslunnar vera í þeim dúr sem reiknað hafi verið með. "Það hefur verið vilji til að geta nýtt þessa námu áfram og mér sýnist að niðurstaðan sé á þeim efnislegu forsendum sem við máttum eiga von á. Við höfum litið á þessa námu sem mjög mikilvæga en teljum jafnframt að þarna verði að fara varlega því svæðið er nálægt okkar vatnslindum," segir Lúðvík. Magnús Gunnarsson, oddviti minnihlutans í Hafnarfirði, segir engan ágreining vera um málið af hálfu minnihlutans og telur farsælt að búið sé að setja ákveðnar reglur svo ekki verði neinn vafi á því hvernig að framkvæmd efnistökunnar verði staðið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×