Innlent

Innbrotsþjófur handtekinn

Tilkynnt var til lögreglunnar í Hafnarfirði á laugardagskvöldið að brotist hefði verið inn í íbúðarhús í Garðabæ og talsverðum verðmætum stolið. Síðar um nóttina handtók lögreglan í Kópavogi aðila sem grunaður var um aðild að innbrotinu og fundust í fórum hans munir því til rökstuðnings. Við yfirheyrslu á sunnudag viðurkenndi hann innbrotið og einnig annað innbrot á Seltjarnarnesi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×