Innlent

Slökkviliðsmenn fylgjast með

Landssamband slökkviliðsmanna ætlar að fylgjast grannt með rannsókn á brunanum í Njarðvík í nótt þar sem meðal annars kviknaði í flugeldalager þannig að slökkviliðsmönnum stafaði stór hætta af. Slökkviliðsmennirnir voru komnir á vettvang og höfðu hafið störf þegar eldur sprengdi gaskúta og heilan flugeldalager í húsinu. Þeim tókst hins vegar að forða sér og sakaði engan. Flugeldarnir voru geymdir þarna í óleyfi, eftir því sem fréttastofan kemst næst, og án vitundar slökkviliðsins. Tilkynnt var um eld í iðnaðarhúsnæði við Bolafót fimm í Njarðvík um klukkan hálf tvö og logaði upp úr hluta af þaki hússins þegar að var komið. Eldurinn magnaðist skjótt og þegar þakið yfir flugeldalagernum rofnaði hófst flugeldasýning með tilheyrandi sprengidrunum. Kallað var á aðstoð slökkviliðisins á Keflavíkurflugvelli og með samstilltu átaki tókst slökkvilliðsmönnum að koma í veg fyrir að allt húsið brynni.  Húsnæði bílaverkstæðis og pallhýsaleigu gjöreyðilagðist og sömuleiðis nokkrir bílar sem bæði voru inni í húsinu og utan við það. Íbúar í nálægum húsum, sem á annað borð voru ekki vaknaðir við lætin, voru vaktir upp til að loka öllum gluggum svo húsin fylltust ekki af reyk því mikinn reykjarmökk lagði frá eldinum. Talið er að neisti frá loftpressu, sem maður vann við á bílaverkstæðinu, hafi kveikt eldinn en maðurinn náði að forða sér út. Slökkvistarfi lauk ekki fyrr en undir klukkan sex í morgun. Strangar reglur gilda um geymslu flugelda og segir Sverrir Björn Bjarnason, varaformaður Landssambands slökkviliðsmanna, að sambandið muni fylgjast með framvindu rannsóknarinnar enda sé það brýnt hagsmunamál slökkviliðsmanna að ekki sé vikið frá þeim reglum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×