Innlent

Ferðamönnum bjargað af jökli

Björgunarsveitarmenn frá Höfn í Hornafirði komu með tvo erlenda ferðamenn ofan af Skálafellsjökli til Hafnar laust fyrir miðnætti. Fólkið hafði lent í erfiðleikum vegna slæms veðurs og færðar og kallaði það á hjálp. Björgunarmenn á vélsleðum komu því til hjálpar á sjöunda tímanum í gærkvöldi og var þá nokkuð af fólkinu dregið vegna þreytu en að öðru leyti amaði ekkert að því.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×