Fjöldi vopna óskráður 13. júní 2004 00:01
Alls eru 71 skotvopn stolið eða týnt samkvæmt upplýsingum úr skotvopnaskrá Ríkislögreglustjóra, þar af hafa sextán glatast síðan árið 2000. Samkvæmt skránni eru um 50.000 skráð skotvopn á landinu. Snorri Sigurjónsson hjá Ríkislögreglustjóra segir að allur gangur sé að því að stolin eða týnd skotvopn komi í leitirnar, en fleiri skili sér heldur en færri. Flest stolnu vopnanna eru haglabyssur en engin óhefðbundin skotvopn eins og skammbyssur eru á skrá yfir óskilamuni. Árið 2000 var hafist handa við gerð skotvopnaskrár og voru þá allar upplýsingar lögreglumdæma landsins um skráð skotvopn landsmanna samræmdar í einn gagnagrunn. Snorri segir skrána vera nokkuð áreiðanlega, en hún verði ekki fullkláruð fyrr en árið 2010 þegar leyfi fyrir öllum skotvopnum á landinu hefðu verið endurnýjuð. Í apríl síðastliðnum var fimm veiðirifflum stolið úr heimahúsi í Grindavík; fjórir þeirra fundust stuttu síðar en einn þeirra er enn ófundinn. Haustið 2003 var þremur haglabyssum og þremur rifflum stolið úr heimahúsi í Keflavík. Í desember síðastliðnum voru tvær haglabyssanna notaðar við Bónusrán í Kópavogi, en ræningjarnir vísuðu einnig á tvo riffla. Einnar haglabyssu og eins riffils er enn saknað. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands, telur að margar byssur á landinu séu óskráðar: "Óskráð vopn á landinu eru alla vega á bilinu 10-20 þúsund. Það var mikið um smygl á vopnum með skipum til landsins áður fyrr, sérstaklega á sjöunda áratugnum. Einnig var mikið um að byssur söfnuðust upp innan fjölskyldna þegar eigendurnir féllu frá því lengi vel var eftirlit með skotvopnum afar dapurt." Snorri Sigurjónsson segir ómögulegt að giska á hversu margar byssur eru óskráðar á landinu. "Það er svo sem hægt að varpa fram einhverjum tölum en það væru bara hugmyndir."
Fréttir Innlent Mest lesið Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Innlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Innlent Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Innlent Lífið gjörbreytt Innlent Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Innlent Elsti Íslendingurinn er látinn Innlent Sameinist í baráttu um að fá risabor og gangaþrennu Innlent „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Innlent Herflugvél snúið við í neyð Innlent Fleiri fréttir Tæplega tvö hundruð þúsund vottorð gefin út af læknum á ári Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Farþeginn enn í haldi lögreglu Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Slökkvilið kallað út vegna ammoníakleka Ummæli Þórunnar dapurleg Margt sem gildir enn í samstarfi Íslands og Bandaríkjanna Fólk farið að reykja kókaínið Kókaínreykingar algengari, vonbrigði í vegagerð og háskaleg eftirför lögreglu Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Taldi brúðkaup í Keníu ekki telja og krefst ógildingar Slökktu eld á Stórhöfða Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Elsti Íslendingurinn er látinn Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Hafnarfjörður mátti ekki afturkalla ráðningu Óskars Steins Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Furðar sig á uppbyggingu við inngang þjóðgarðsins Grindvíkingar fái að velja hvar þeir kjósa „Auðvitað er forgangsröðun jarðganga vonbrigði fyrir mig“ „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Ekki búið að bera kennsl á þann sem ekið var á Uggur í læknum og samtöl við Norðurlönd nauðsynlegt Fóru ekki fram á lengra varðhald yfir lögmanninum Áhyggjufullir læknar Hlaup hafið í Skaftá Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Lífið gjörbreytt Grindvíkingar hugsa um að fara heim: Gott að vera í Grindavík en verður aldrei eins Sjá meira