Innlent

Hald lagt á 150 DVD myndir

Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur lagt hald á rúmlega 150 ólöglega afritaðar kvikmyndir á DVD-diskum, sem Íslendingur reyndi að smygla til landsins. Að minnsta kosti ein myndanna er nú í kvikmkyndahúsum hér á landi og hefur hvergi í heiminum verið gefin út á DVD. Íslenskur karlmaður á fertugsaldri var stoppaður af Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli síðastliðinn fimmtudag með ferðatösku fulla af kvikmyndum á DVD diskum. Hann var að koma frá suð-austur Asíu og voru myndirnar samtals 156. Meðal myndanna var nýjasta mynd Brad Pitt, Troy, sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum hér á landi, og myndin Girl next door, sem er ekki farið að sýna á Íslandi. Hvorug myndanna hefur verið gefin út á DVD en það er næsta stig útgáfu eftir að myndir hafa verið sýndar í kvikmyndahúsum. Líklega hafa myndirnar verið fjölfaldaðar þannig að óprúttinn bíógestur hefur myndað þær af hvíta tjaldinu og myndgæðin því ekki góð. Eldri myndir og tónlistarmyndbönd voru einnig í töskunni og leitaði Tollgæslan til samtaka myndrétthafa á Íslandi til að fá úr því skorið hvort allt efnið væri falsað. Talið er að þetta tiltekna mál sýni augljósan árangur aukins samstarfs myndrétthafa við lögreglu og tollgæslu um hvernig megi þekkja falsaðar myndir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×