Tilhlökkun í hópnum 19. nóvember 2004 00:01 "
Það ríkir mikil tilhlökkun meðal kórfélaga," segir Jón Hallsson, formaður Karlakórs Reykjavíkur, en kórinn er á leið til Englands til tónleikahalds fyrstu helgina í desember. Í 78 ára sögu sinni hefur kórinn aldrei til Englands komið þrátt fyrir að hafa sungið um víða veröld, til dæmis í Kína, Bandaríkjunum og Rússlandi. "Við vildum gera eitthvað á aðventunni og ákváðum að nýta prógrammið sem við höfum æft að undanförnu. Úr varð að fara til Englands en áður syngjum við í Reykholti og svo í Hallgrímskirkju eftir heimkomuna." Yfir 70 félagar eru í Karlakór Reykjavíkur og halda þeir vitaskuld flestir utan og margir bjóða eiginkonunni með. Fyrir þær þarf að greiða úr eigin vasa en kórinn borgar bróðurpart ferðakostnaðar kórfélaganna sjálfra. Kórinn heldur fyrst hljómleika í Southwark-dómkirkjunni í Lundúnum sem stendur við Thames-ána, rétt við hina sögufrægu Lundúnabrú. "Svo heimsækjum við líka erkibiskupssetrið í Kantaraborg og það er okkur mikil ánægja að geta komist þangað," segir Jón formaður. Að endingu syngur kórinn í jólamessu Íslendingasafnaðarins í Lundúnum. Viðbúið er að einhverjir Íslendingar bregði sér utan til að hlýða á Karlakór Reykjavíkur flytja jóladagskrá sína í Southwark-dómkirkjunni því Icelandair efnir til sérstakrar hljómleikaferðar dagana 2. til 4. desember. Förin kostar 43.437 krónur á mann og miðast verðið við tveggja manna herbergi á Somerset Bayswater-hótelinu. Miði á tónleikana fylgir.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira