Ekki sama vöfflur og vöfflur 19. nóvember 2004 00:01
Sá siður hefur lengi verið viðhafður að bjóða upp á vöfflur í húsakynnum Ríkissáttasemjara þegar nýir kjarasamningar eru undirritaðir. Ekki var brugðið út af þeirri venju á miðvikudaginn þegar sáttir náðust í kjaradeilu kennara. Sesselja M. Matthíasdóttir, sem jafnan er kölluð Maggý, sér um vöfflurnar á þeim bænum og sagðist hún aðspurð notast við vöfflumix frá Kötlu. Hún lætur þó ekki duga að blanda það vatni heldur setur hún örlítið af matarolíu og ögn af vanillu út í. Þá bætir hún stundum mjólk saman við. Úr þessu verða ljómandi góðar vöfflur, um það vitna þeir sem bragðað hafa. Það er annars galdur að búa til góðar vöfflur og ekki á allra færi, nema þeir hafi góða uppskrift. Samanburðarrannsóknir á nokkrum viðurkenndum uppskriftum leiða í ljós að uppistaðan er jafnan hveiti, smjörlíki, sykur, egg og mjólk. Misjafnt er hins vegar hvort lyftidufti er bætt við, sumir kjósa það en aðrir ekki. Eins er misjafnt hvernig og hvort dropar eru notaðir en sé svo koma ýmist kardemommu-, vanillu- og sítrónudropar til greina. Sumar vöffluuppskriftir gera ráð fyrir örlitlu salti og enn aðrar rjómalögg. Reyndar leiddu athuganir í ljós að minnst tuttugu vöffluuppskrifir virðast á floti í samfélaginu en flestar eru þær keimlíkar. Erfitt er að mæla með einhverri einni uppskrift og í raun þarf hver og einn að finna sinn takt, sitt bragð, enda bragðlaukarnir misjafnir. Óhætt er þó að hvetja fólk til prófa sig áfram og eins er óhætt að benda á leið Maggýjar hjá Sáttasemjara. Vöfflurnar hennar eru jú rómaðar um alla verkalýðshreyfingu og einnig langt inn í raðir atvinnurekenda.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Fleiri fréttir Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Sjá meira