Innlent

Hafsteinn hættir hjá Gæslunni

Hafsteinn Hafsteinsson lætur af störfum sem forstjóri Landhelgisgæslu Íslands 1. janúar næstkomandi. Fallist hefur verið á ósk hans um tilflutning í starfi og mun hann hefja störf sem skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu. Hafsteinn mun á þeim vettvangi meðal annars starfa að málefnum sem tengjast hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. Hafsteinn er hæstaréttarlögmaður og hefur verið forstjóri Landhelgisgæslunnar í rúm ellefu ár. Hann hefur sérhæft sig í sjótryggingum og hafrétti og er löggiltur niðurjöfnunarmaður sjótjóna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×